Beiðni um styrk vegna alþjóðlegs skíðamóts

Málsnúmer 201702083

Íþrótta- og tómstundanefnd - 28. fundur - 22.02.2017

Fyrir liggur beiðni um styrk, dagsett 14. febrúar 2017, frá Emblu Rán Baldursdóttur, vegna þátttöku í alþjóðlegu skíðamóti í alpagreinum sem Skíðasamband Íslands hefur forgöngu um.

Íþrótta og tómstundanefnd leggur til að styrkja Emblu Rán um kr. 50.000 sem tekið verði af lið 0689. Nefndin óskar henni velfarnaðar á mótinu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.