Breyting á skóladagatali Tónlistarskólans á Egilsstöðum

Málsnúmer 201701102

Fræðslunefnd Fljótsdalshéraðs - 244. fundur - 24.01.2017

Sóley Þrastardóttir, skólastjóri Tónlistarskólans á Egilsstöðum fer fram á heimild til að breyta samþykktu skóladagatali skólaársins 2016-2017 þannig að í stað 26. maí verði laugardagurinn 18. mars skóladagur. Ástæðan er að Nótan fyrir Norður- og Austurland verður haldinn hér 18. mars.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.