Yfirlit yfir húsaleigubætur og sérstakar húsaleigubætur 2016

Málsnúmer 201701069

Félagsmálanefnd - 151. fundur - 25.01.2017

Lagt fram yfirlit yfir veittar húsaleigubætur og sérstakar húsaleigubætur á Fljótsdalshéraði árið 2016. Þar kemur fram að heildarupphæð almennra húsaleigubóta á árinu var kr. 33.802.286. Heildarupphæð sérstakra húsaleigubóta fyrir sama tímabil var kr. 1.367.808. Alls voru því greiddar húsaleigubætur/sérstakar húsaleigubætur á Fljótsdalshéraði árið 2016 kr. 35.170.194. Ekki liggur fyrir endanleg upphæð um hvert mótframlag ríkisins vegna húsaleigubóta verður árið 2016.