Umsókn um verkefnastyrk til menningar- og listastarfsemi/Héraðsskjalasafns Austfirðinga

Málsnúmer 201612077

Atvinnu- og menningarnefnd - 55. fundur - 11.09.2017

Fyrir liggur greinargerð frá Héraðsskjalasafni Austfirðinga og Minjasafni Austurlands vegna sýningarinnar Þorpið á Ásnum, sýning í tilefni af 70 ára afmæli þéttbýlis á Egilsstöðum, sem söfnin stóðu að í sumar með stuðningi Fljótsdalshéraðs. Óskað er eftir viðbótarframlagi vegna ófyrirséðs kostnaðar við verkefnið.

Atvinnu- og menningarnefnd leggur til að verkefnið verði styrkt um kr. 150.000 sem tekið verði af lið 0583.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.