Eftirlitsskýrlsa HAUST/Áhaldahús ásamt með dýrageymslu

Málsnúmer 201612023

Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 60. fundur - 14.12.2016

Lagt er fyrir nefndina eftirlitsskýrslu HAUST á Áhaldahúsi Fljótsdalshéraðs ásamt með dýrageymslu til kynningar.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd vill brýna fyrir forstöðumanni Þjónustumiðstöðvar að verða við ábendingum HAUST sem allra fyrst, að öðru leiti er skýrslan lögð fram til kynningar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.