Fyrir liggur styrkumsókn frá Tónlistarskólanum á Egilsstöðum, dagsett 11. október 2016, vegna strengjamóts í umsjón skólans.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar samþykkir bæjarstjórn að verkefnið verði styrkt um kr. 100.000 sem tekið verði af lið 0574.
Atvinnu og menningarnefnd leggur til að verkefnið verði styrkt um kr. 100.000 sem tekið verði af lið 0574.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.