Umsókn um breytingu á rekstrarleyfi til sölu gistingar/Vallanes

Málsnúmer 201606143

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Fljótsdalshéraðs - 150. fundur - 20.07.2016

Lagt er fram erindi Sýslumanns þar sem óskað er eftir umsögn með vísan í 1. mgr. 12. gr. og 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 á umsókn um rekstrarleyfi til sölu gistingar og/eða veitingu veitinga.

Erindi frestað.

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Fljótsdalshéraðs - 151. fundur - 10.08.2016

Lagt er fram erindi Sýslumanns að nýju, óskað er eftir umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa á Umsókn um breytingu á rekstrarleyfi. Veitingastaður í flokki II, dags. 28.júní 2016.

Mannvirkið sem rekstrarleyfið nær til er ófullgert og enn í byggingu. Umsögn er því neikvæð með vísan í byggingarstig húss.