Umsókn um rekstrarleyfi fyrir gistingu/Eyjólfsstaðaskógur 28

Málsnúmer 201606142

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Fljótsdalshéraðs - 150. fundur - 20.07.2016

Lagt er fram erindi Sýslumanns þar sem óskað er eftir umsögn með vísan í 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 á umsókn um nýtt rekstrarleyfi, gisting í flokki II - sumarhús fyrir Eyjólfsstaðaskóg 28.

Byggingarfulltrúi neikvæða umsögn með vísan í byggingarstig húss.

Sækja þarf um öryggis- og lokaúttekt.

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 351. fundur - 15.08.2016

Lagt er fram erindi Sýslumanns þar sem óskað er eftir umsögn með vísan í 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 á umsókn um nýtt rekstrarleyfi, gisting í flokki II - sumarhús fyrir Eyjólfsstaðaskóg 28.


Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarráð staðfestir að afgreiðslutími og staðsetning staðarins sé innan þeirra marka sem lögreglusamþykkt Fljótsdalshéraðs frá 11. júní 2009 og skipulag sveitarfélagsins segir til um.
Bæjarráð bendir þó á að byggingarfulltrúi veitti neikvæða umsögn með vísan í byggingarstig húss.