Umsókn um nýtt rekstarleyfi til sölu gistingar/Helgafell 4b

Málsnúmer 201606059

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Fljótsdalshéraðs - 149. fundur - 15.06.2016

Lagt er fram erindi sýslumanns á Austurlandi kt.410914-0770 með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald er óskað eftir umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa á umsókn um nýtt rekstrarleyfi, gistileyfi í flokki II - Íbúðir, fyrir Helgafell 4b, 700 Egilsstöðum.

Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins, en vísar í athugasemdir eldvarnareftirlits.

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 346. fundur - 20.06.2016

Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarráð staðfestir að afgreiðslutími og staðsetning staðarins sé innan þeirra marka sem lögreglusamþykkt Fljótsdalshéraðs frá 11. júní 2009 og skipulag sveitarfélagsins segir til um.

Samþykkt samhljóða.