Umsókn um breytingu á rekstrarleyfi til sölu gistingar/Ásgeirsstaðir

Málsnúmer 201606045

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Fljótsdalshéraðs - 149. fundur - 15.06.2016

Lagt er fram erindi sýslumanns á Austurlandi kt.410914-0770 með vísan til 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald er óskað eftir umsögn skipulags- og byggingarfulltrúa á umsókn um nýtt rekstrarleyfi, gistileyfi í flokki II - Sumarhús, fyrir Ásgeirsstaði, 701 Egilsstaðir.

Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins en vísar í athugasemdir brunavarnaeftirlitsins.