Umsókn um nýtt rekstrarleyfi /Úlfsstaðaskógur 28

Málsnúmer 201605123

Afgreiðslufundur byggingarfulltrúa Fljótsdalshéraðs - 149. fundur - 15.06.2016

Lagt er fram erindi Sýslumanns þar sem óskað sé eftir umsögn á umsókn um nýtt gistileyfi í fl.2 - Sumarhús í Úlfsstaðarskógi nr. 28, dags. 19.05.2016 með vísan til 5.tl. 4.mgr. 10.gr. laga nr.85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald. Umsækjandi er Stefanía Erla Salómonsdóttir, kt.100944-3089.

Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins, en vísar í athugasemdir eldvarnareftirlits.

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 346. fundur - 20.06.2016

Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við umsóknina.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarráð staðfestir að afgreiðslutími og staðsetning staðarins sé innan þeirra marka sem lögreglusamþykkt Fljótsdalshéraðs frá 11. júní 2009 og skipulag sveitarfélagsins segir til um.

Samþykkt samhljóða.