Launaviðaukar 2016

Málsnúmer 201604111

Félagsmálanefnd - 143. fundur - 27.04.2016

Félagsmálanefnd leggur fram beiðni til bæjarstjórnar um viðauka í fjárhagsáætlun 2016 vegna launahækkana skv. kjarasamningum sem gerðir voru um síðastliðin áramót. Launahækkunin kr. 2.976.832 nær til starfsfólks innan málaflokks fatlaðs fólks. Jafnframt er gert ráð fyrir að framlög Skólaskrifstofu Austurlands hækki sem þessari upphæð nemur.