Jólaleyfi bæjarstjórnar og bæjarráðs 2015

Málsnúmer 201512052

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 322. fundur - 14.12.2015

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að jólaleyfi bæjarstjórnar verði frá og með 17. desember til og með 8. janúar.
Bæjarráð fari með fullnaðarafgreiðsluumboð á þeim tíma og verður kallað saman ef þurfa þykir. Næsti reglulegi fundur bæjarráðs er áformaður 11. janúar.

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 229. fundur - 16.12.2015

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir að jólaleyfi bæjarstjórnar verði frá og með 17. desember til og með 8. janúar 2016.
Jafnframt samþykkir bæjarstjórn að veita bæjarráði fullnaðarafgreiðsluheimild mála, sbr. 5. mgr. 35. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 meðan bæjarstjórn er í jólaleyfi.
Bæjarráð verður kallað saman til fundar á þessu tímabili ef þurfa þykir. Næsti reglulegi fundur bæjarráðs er hins vegar áformaður 11. janúar 2016.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.