Bæjarstjórnarbekkurinn

Málsnúmer 201512051

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 322. fundur - 14.12.2015

Farið yfir þau erindi sem bárust á bæjarstjórnarbekknum sem haldinn var í Barra sl. laugardag.
Bæjarstjóra falið að koma erindunum á framfæri við viðkomandi nefndir og starfsmenn.

Einnig lögð fram eftirfarandi vísa sem bæjarráði var afhent við það tækifæri.

Bæjarstjórnarbekkurinn
berst við röfl og tuð.
Krúttlegur Jólakötturinn
kemur þeim í stuð.

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 229. fundur - 16.12.2015

Í bæjarráði var farið yfir þau erindi sem bárust á bæjarstjórnarbekknum sem haldinn var í Barra sl. laugardag.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarstjóra að koma erindunum á framfæri við viðkomandi nefndir og starfsmenn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.