Ályktun frá Skólastjórafélagi Austurlands.

Málsnúmer 201509094

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 312. fundur - 28.09.2015

Lögð fram ályktun frá Skólastjórafélagi Austurlands um stöðu kjaraviðræðna skólastjórnenda við sveitarfélögin.

Bæjarráð leggur áherslu á það við kjarasvið Sambands ísl. sveitarfélaga, sem fer með samningsumboð sveitarfélaga, að vinnu við samningsgerð verði flýtt eins og kostur er.