Erindi í tölvupósti dags. 16.08. 2015, þar sem Sýslumaðurinn á Austurlandi kt. 410914-0770, með vísan til fyrsta töluliðs 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, óskar eftir umsögn byggingarfulltrúa um nýtt gistileyfi í fl. II. Umsækjandi er Húsastóll kt. 640300-3450. Ábyrgðarmaður er Valþór Þorgeirsson kt. 170857-6079 Starfsstöð er Lagarás 12, Egilsstöðum.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarstjórn staðfestir framangreinda afgreiðslu byggingarfulltrúa. Jafnframt staðfestir bæjarstjórn að afgreiðslutími og staðsetning staðarins sé innan þeirra marka sem lögreglusamþykkt Fljótsdalshéraðs frá 11. júní 2009 og skipulag sveitarfélagsins segir til um.