Fundur í starfshóp um málefni Hallormsstaðaskóla 3.7.2015

Málsnúmer 201507011

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 302. fundur - 13.07.2015

Bæjarstjóri gerði grein fyrir fundi starfshópsins.

Eftirfarandi tillaga lögð fram:

Að tillögu starfshópsins samþykkir bæjarráð með handauppréttingu að skóla- og íþróttahúsnæði á Hallormsstað verði komið í sölumeðferð hjá fasteignasölunum Inni og Domus. Bæjarstjóra falið að ganga frá málinu.

Fundargerðin að öðru leyti staðfest.