Erindi í tölvupósti dags.09.06. 2015 þar sem Sýslumaðurinn á Austurlandi kt. 410914-0770, með vísan til fyrsta töluliðs 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, óskar eftir umsögn byggingarfulltrúa um nýtt rekstrarleyfi fyrir íbúð 0101 að Hamragerði 7 Egilsstöðum. Umsækjandi er Fasteignafélagið Jaxlar Jaxlar kt. 540514-1190. Starfsstöð er Hamragerði 7 íbúð 0101, Fljótsdalshéraði.
Byggingarfulltrúi gerir ekki athugasemd við veitingu leyfisins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarstjórn staðfestir framangreinda afgreiðslu byggingarfulltrúa. Jafnframt staðfestir bæjarstjórn að afgreiðslutími og staðsetning staðarins sé innan þeirra marka sem lögreglusamþykkt Fljótsdalshéraðs frá 11. júní 2009 og skipulag sveitarfélagsins segir til um.