Erindi í tölvupósti dagsett 27.04.2015 þar sem Anna Elín Jóhannsdóttir Vegagerðinni tilkynnir um fyrirhugað útboð á styrkingu og endurbótum á veginum frá Jökulsá á Brú og upp Heiðarendann á um 6,4 km. kafla. Áætlað efnismagn er samtals um 36.000 m3.
Erindi frá Vegagerðinni dags. 27.04. 2015 þar sem tilkynnt er um fyrirhugað útboð á styrkingu og endurbótum á veginum frá Jökulsá á Brú og upp Heiðarendann á um 6,4 km. kafla.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarstjórn fagnar þessari framkvæmd, en bendir jafnframt á að víða er knýjandi þörf á vegabótum á vegum innan sveitarfélagsins.
Lagt fram til kynningar.