Lögð fram hugmynd af vefsvæðinu Betra Fljótsdalshérað um að starfræktur verði fjölskyldu- og húsdýragarður á gamla tjaldsvæðisreitnum.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Bæjarstjórn tekur undir með umhverfis- og framkvæmdanefnd og telur að starfsemi af þessu tagi samræmist ekki þeim hugmyndum sem uppi eru um miðbæ Egilsstaða. Bæjarstjórn bendir jafnframt á að umhverfis- og framkvæmdanefnd er fús til viðræðna við þá aðila sem áhuga hafa á slíkum rekstri í sveitarfélaginu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdanefnd telur að starfsemi af þessu tagi samræmist ekki þeim hugmyndum sem uppi eru um miðbæ Egilsstaða.
Nefndin er fús til viðræðna við þá aðila sem áhuga hafa á slíkum rekstri í sveitarfélaginu.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.