Fyrir liggur hugmynd að nýtingu á seyru til landgræðslu á Fljótsdalshéraði. Meðfylgjandi er kort þar sem bent er á nokkra valda staði til uppgræðslu.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að tillögu umhverfis- og framkvæmdanefndar tekur bæjarstjórn jákvætt í erindið,en bendir á að rekstur fráveitukerfisins er á höndum Hitaveitu Egilsstaða og Fella.
Eftirfarandi tillaga lögð fram:
Umhverfis- og framkvæmdanefnd tekur jákvætt í erindið.
Nefndin bendir á að rekstur fráveitukerfisins er á höndum Hitaveitu Egilsstaða og Fella.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.