Lögð fram til kynningar fundargerð hluthafafundar í GáF ehf., frá 11.mars 2015.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarráð samþykkir fyrir sitt leyti tillögu stjórnar Gáf um hlutafjáraukningu í félaginu og hækkun hlutafjár Fljótsdalshéraðs í GáF um kr. 1.000.000. Jafnframt að Fljótsdalshérað sem hluthafi falli frá forkaupsrétti sínum að hlutafé í félaginu skv. 7. gr. samþykkta félagsins. Framangreint er hluti af samkomulagi eigenda félagsins um uppgjör á skuldum þess og lok verkefnisins.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að tillögu bæjarráðs samþykkir bæjarstjórn tillögu stjórnar Gáf um hlutafjáraukningu í félaginu og hækkun hlutafjár Fljótsdalshéraðs í GáF um kr. 1.000.000. Jafnframt að Fljótsdalshérað sem hluthafi falli frá forkaupsrétti sínum að hlutafé í félaginu skv. 7. gr. samþykkta félagsins. Framangreint er hluti af samkomulagi eigenda félagsins um uppgjör á skuldum þess og lok verkefnisins.
Bæjarstjóri kynnti frekar umræður á fundinum, en þar var samþykkt að hætta við verkefnið.
Væntanlegar eru tillögur að fjárhagslegu uppgjöri félagsins.