Elín Rán fór yfir mönnun leikskólans í sumar, en þá verða 8 börn á leikskólanum. Hún leggur til að opnun leikskólans verði eins alla daga í sumar, frá kl. 08:00 til 16:00. Skólanefnd samþykkir þann opnunartíma fyrir sitt leyti. Elín Rán kynnti tilboð í hádegisverð fyrir leikskólann í sumar frá Hótel Hallormsstað. Skólanefnd samþykkir fyrir sitt leyti að gerður verði samningur um umræddar máltíðir í sumar.
Á fundi skólanefndar fór Elín Rán yfir mönnun leikskólans í sumar, en þá verða 8 börn á leikskólanum. Hún leggur til að opnun leikskólans verði eins alla daga í sumar, frá kl. 08:00 til 16:00. Jafnframt kynnti Elín Rán tilboð í hádegisverð fyrir leikskólann í sumar frá Hótel Hallormsstað.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að tillögu skólanefndar samþykkir bæjarstjórn þann opnunartíma. Bæjarstjórn samþykkir einnig að gerður verði samningur um umræddar máltíðir í sumar.