Umsókn um styrk vegna menningarvöku í Valaskjálf

Málsnúmer 201404093

Menningar- og íþróttanefnd Fljótsdalshéraðs - 55. fundur - 13.05.2014

Fyrir liggur styrkumsókn frá Menningarsamtökum Héraðsbúa vegna menningarvöku í Valaskjálf í apríl.

Menningar og íþróttanefnd samþykkir að styrkja verkefnið um kr. 60.000 sem tekið verði af lið 05.74.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 197. fundur - 21.05.2014

Afgreiðsla menningar- og íþróttanefndar staðfest.