Fundargerðir Fasteignafélags Iðavalla 2014

Málsnúmer 201403108

Fasteignafélag Iðavalla ehf. - 1. fundur - 18.03.2014

Í upphafi fundar skipti stjórnin með sér verkum þannig: Björn formaður, Eyrún varaformaður, Óðinn ritari.

Í framhaldinu var farið yfir helstu verkefni félagsins.

Ákveðið að næsti fundur stjórnar verði haldinn kl. 12.00, föstudaginn 21. mars.

Bæjarráð Fljótsdalshéraðs - 252. fundur - 26.03.2014

Í fundargerðinni kemur fram að stjórnin hefur skipað með sér verkum á þann veg að Björn Ingimarsson verður formaður, Eyrún Arnardóttir varaformaður og Óðinn Gunnar Óðinsson ritari.
Fundargerðin að öðru leyti lögð fram til kynningar.