Erindi í tölvupósti dags.12.11.2013. þar sem Sýslumaðurinn á Seyðisfirði kt.490169-5479, Með vísan til fyrsta töluliðs 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald, óskar eftir umsögn bæjarstjórnar um endurnýjun á gistileyfi í fl. V. Umsækjandi er Gistiheimilið Eyvindará kt.450307-1570. Starfsstöð er Gistiheimilið Eyvindará.
Byggingarfulltrúi mælir með veitingu leyfisins. Bókun þessi var staðfest af skipulags- og mannvirkjanefnd Fljótsdalshéraðs þann 27. nóv. 2013.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarstjórn staðfestir framangreinda afgreiðslu skipulags- og mannvirkjanefndar. Jafnframt staðfestir bæjarstjórn að afgreiðslutími og staðsetning staðarins sé innan þeirra marka sem lögreglusamþykkt Fljótsdalshéraðs frá 11. júní 2009 og skipulag sveitarfélagsins segir til um.