Yfirlit yfir fjölda tíma og umfang félagslegrar heimaþjónustu.

Málsnúmer 201309069

Félagsmálanefnd - 120. fundur - 16.09.2013

Yfirlit yfir umfang og eðli félagslegrar heimaþjónustu á Fljótsdalshéraði árið 2011, 2012 og fyrstu sjö mánuði ársins 2013 lagt fram til kynningar. Þar kemur meðal annars fram að alls 47 heimili fengu félagslega heimaþjónustu 31. júlí sl. Flestir sem nutu þjónustunnar á þessum tíma eða 24 eru eldri borgarar, 19 öryrkjar og fjórir einstaklingar sem falla ekki undir ofangreinda tvo hópa fengu áðurnefnda þjónustu.