Erindi í tölvupósti dags.8.8.2013 þar sem Sýslumaðurinn á Seyðisfirði kt. 490169-5479, óskar eftir umsögn bæjarstjórnar um endurnýjun á rekstrarleyfi fyrir Vínland hið góða ehf. kt.690513-0640. Forsvarsmaður er Brynjólfur Vignisson kt.180347-2409. Starfsstöð er Vínland. Með vísan til fyrsta töluliðs 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.
Byggingarfulltrúi mælir með veitingu leyfisins.
Sú afgreiðsla var staðfest af skipulags- og mannvirkjanefnd Fljótsdalshéraðs þann 11. sept. 2013.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarstjórn staðfestir framangreinda afgreiðslu skipulags- og mannvirkjanefndar. Jafnframt staðfestir bæjarstjórn að afgreiðslutími og staðsetning staðarins sé innan þeirra marka sem lögreglusamþykkt Fljótsdalshéraðs frá 11. júní 2009 og skipulag sveitarfélagsins segir til um.