Erindi í tölvupósti dags.6.9.2013 þar sem Sýslumaðurinn á Seyðisfirði kt. 490169-5479, óskar eftir umsögn bæjarstjórnar um breytingu á rekstrarleyfi til sölu gistingar fyrir Gistiheimilið Eyvindará kt.450307-1570, forsvarsmaður er Sigurbjörg Inga Flosadóttir kt.040353-3139.starfsstöð er Gistiheimilið Eyvindará. Með vísan til fyrsta töluliðs 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.
Byggingarfulltrúi mælir með veitingu leyfisins.
Sú afgreiðsla var staðfest af skipulags- og mannvirkjanefnd Fljótsdalshéraðs þann 11. sept. 2013.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarstjórn staðfestir framangreinda afgreiðslu skipulags- og mannvirkjanefndar. Jafnframt staðfestir bæjarstjórn að afgreiðslutími og staðsetning staðarins sé innan þeirra marka sem lögreglusamþykkt Fljótsdalshéraðs frá 11. júní 2009 og skipulag sveitarfélagsins segir til um.