Erindi í tölvupósti dags.4.9.2013 þar sem Hrafnkell Elísson f.h. H-gæða ehf. kt.670706-1330, óskar eftir að skila inn lóðunum 1-5 við Klettasel.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að tillögu skipulags- og mannvirkjanefndar samþykkir bæjarstjórn erindi umsækjanda og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að afturkalla kröfu um gatnagerðargjöld af lóðunum í samræmi við reglur þar um.
Eftirfarand tillaga lögð fram:
Skipulags- og mannvirkjanefnd samþykkir erindi umsækjanda og felur skipulags- og byggingarfulltrúa að afturkalla kröfu um gatnagerðargjöld af lóðunum.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.