Erindi í tölvupósti dags.5.9.2013 þar sem Sýslumaðurinn á Seyðisfirði kt.490169-5479, óskar eftir umsögn bæjarstjórnar um endurnýjun á veitingaleyfi í fl. II. fyrir N1, kt.540206-2010 forsvarsmaður er Ómar Jóhannsson kt.200930-5059. Starfsstöð er Kaupvangur 4, Egilsstöðum. Með vísan til fyrsta töluliðs 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007, um veitingastaði, gististaði og skemmtanahald.
Byggingarfulltrúi mælir með veitingu leyfisins.
Sú afgreiðsla var staðfest af skipulags- og mannvirkjanefnd Fljótsdalshéraðs þann 11. sept. 2013.
Eftirfarandi tillaga lögð fram: Bæjarstjórn staðfestir framangreinda afgreiðslu skipulags- og mannvirkjanefndar. Jafnframt staðfestir bæjarstjórn að afgreiðslutími og staðsetning staðarins sé innan þeirra marka sem lögreglusamþykkt Fljótsdalshéraðs frá 11. júní 2009 og skipulag sveitarfélagsins segir til um.