Fyrir liggur tölvupóstur, dagsettur 2. september, frá Stefáni Boga Sveinssyni, þar sem sótt er um styrk til ljóðahátíðar sem fram fer á Egilsstöðum og Akureyri og er á vegum Litlu ljóða hámerinnar og Ljóðaklúbbsins Hása kisa.
Menningar- og íþróttanefnd leggur til að ljóðahátíðin verði styrkt með kr. 25.000 framlagi sem tekið verði af lið 05.89.

Eftirfarandi tillaga lögð fram: Að tillögu menningar- og íþróttanefndar samþykkir bæjarstjórn að ljóðahátíðin verði styrkt með 25.000 kr. framlagi, sem tekið verði af lið 05.89.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu, en einn var fjarverandi (SBS)
Menningar- og íþróttanefnd leggur til að ljóðahátíðin verði styrkt með kr. 25.000 framlagi sem tekið verði af lið 05.89.
Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.