Umræður við starfsfólk Barnaverndarstofu um framkvæmd barnaverndarmála

Málsnúmer 201308043

Félagsmálanefnd - 119. fundur - 19.08.2013

Á fund félagsmálanefndar mættu þrír starfsmenn Barnaverndarstofu, Bragi Guðbrandsson, forstjóri, Heiða Björg Pálmadóttir, lögfræðingur og Páll Ólafsson, verkefnastjóri. Á fundinum var rætt um starfsskilyrði, verkefni og úrræði nefndarinnar.