Athugasemd vegna lokana á slóðum við Snæfell.

Málsnúmer 201308006

Umhverfis- og héraðsnefnd Fljótsdalshéraðs - 60. fundur - 27.08.2013

Fyrir liggur bréf frá Félagi leiðsögumanna með hreindýraveiðum varðandi slóðina frá Sauðárkofa, um Kolludrag, að Snæfellsskála.

Umhverfis- og héraðsnefnd þakkar fyrir ábendinguna og mun taka til athugunar að viðhald á slóðanum komi inn á styrkvegaáætlun fyrir árið 2014.

Samþykkt með handauppréttingu