Beiðni um styrk vegna Sumardvalar á Eiðum fyrir fólk með fötlun

Málsnúmer 201303157

Menningar- og íþróttanefnd Fljótsdalshéraðs - 46. fundur - 09.04.2013

Fyrir liggur tölvupóstur, dagsettur 26. mars 2013, frá Önnu K. Magnúsdóttur á Eiðum, með beiðni um styrk vegna Sumardvalar á Eiðum fyrir fólk með fötlun.

Menningar- og íþróttanefnd telur sér ekki fært að styrkja verkefnið.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 176. fundur - 17.04.2013

Afgreiðsla menningar- og íþróttanefndar staðfest.