Beiðni um styrk vegna lokaritgerðar um Jazzhátíð Egilsstaða á Austurlandi

Málsnúmer 201303054

Menningar- og íþróttanefnd Fljótsdalshéraðs - 46. fundur - 09.04.2013

Fyrir liggur tölvupóstur, dagsettur 6. mars frá Evu Björk Káradóttur með umsókn um styrk vegna lokaritgerðar um Jazzhátíð Egilsstaða á Austurlandi.

Menningar- og íþróttanefnd telur sér ekki fært að styrkja verkefnið en hefur áhuga á að skoða kaup á ritgerðinni þar sem þar er m.a. gert ráð fyrir tillögum um framtíðarskipulag hátíðarinnar.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 176. fundur - 17.04.2013

Afgreiðsla menningar- og íþróttanefndar staðfest.