Atvinnu- og menningarnefnd - 87

Málsnúmer 1905004F

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 295. fundur - 22.05.2019

Til máls tóku: Gunnhildur Ingvarsdóttir, sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Björg Björnsdóttir, sem ræddi lið 3.1. Gunnar Jónsson, sem ræddi liði 3.1, 3.2 og 3.3. Hannes K. Hilmarsson, sem ræddi lið 3.3. Anna Alexandersdóttir, sem ræddi liði 3.2 og 3.3. Björg Björnsdóttir, sem ræddi liði 3.3 og 3.2. Anna Alexandersdóttir, sem ræddi lið 3.3. Stefán Bogi Sveinsson, sem ræddi liði 3.1, 3.2 og 3.3 og Gunnhildur Ingvarsdóttir, sem ræddi liði 3.1, 3.2 og 3.3.

Fundargerðin lögð fram.
  • Bókun fundar Fyrir liggja gögn er varða verkefni sem tengist Úthéraði.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar samþykkir bæjarstjórn að myndaður verði starfshópur tveggja fulltrúa atvinnu- og menningarnefndar og tveggja fulltrúa náttúruverndarnefndar, sem hafi það hlutverk að móta verkefnalýsingu m.a. á grunni fyrirliggjandi gagna ásamt því að leggja fram kostnaðaráætlun fyrir verkefnið og tillögu að fjármögnun þess. Starfsmenn nefndanna vinni með hópnum. Í framhaldinu verði auglýst eftir aðila til að vinna verkefnið ásamt hópnum. Starfsmanni atvinnu- og menningarnefndar falið að kalla hópinn saman til fyrsta fundar. Fulltrúar atvinnu- og menningarnefndar verði Aðalheiður Björt Unnarsdóttir og Aron Steinn Halldórsson. Óskað er eftir að náttúruverndarnefnd tilnefni sína fulltrúa.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Fyrir liggur tölvupóstur og bréf frá Benedikt V. Warén þar sem hvatt er til að kannaðir verði möguleikar á því að byggja sjúkrahús á Egilsstöðum.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar leggur bæjarstjórn til að vegna legu Egilsstaða og Egilsstaðaflugvallar verði lögð áhersla á að bæta aðstöðu til greiningar bráðveikra og slasaðra við HSA á Egilsstöðum. Jafnframt verði aðstaða fyrir móttöku sérfræðinga bætt.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.

  • Bókun fundar Í vinnslu.