Atvinnu- og menningarnefnd - 62

Málsnúmer 1801011F

Bæjarstjórn Fljótsdalshéraðs - 268. fundur - 07.02.2018

Til máls tóku: Guðmundur Sveinsson Kröyer sem kynnti fundargerðina og lagði fram drög að bókunum. Stefán Bogi Sveinsson, sem ræddi lið 4.1 og bar fram fyrirspurn og Guðmundur Sveinsson Kröyer, sem ræddi lið 4.1 og svaraði fyrirspurn.

Fundargerðin lögð fram.
  • Bókun fundar Atvinnu- og menningarnefnd hefur farið yfir þær styrkumsóknir til menningarmála sem nefndinni bárust,í framhaldi af því að auglýst var eftir umsóknum með umsóknarfresti til og með 15. desember 2017.
    Alls bárust 28 umsóknir með styrkbeiðni upp á kr. 10.750.000. Til úthlutunar voru kr. 3.150.000.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu atvinnu- og menningarnefnd samþykkir bæjarstjórn að eftirfarandi verkefni verði styrkt:
    Lúðrasveit og skólahljómsveit Fljótsdalshéraðs; Berglind Halldórsdóttir kr. 200.000 -
    Listasumar B sýning; Bylgja Lind Pétursdóttir 150.000 -
    Tónlistarstundir 2018; Tónlistarstundir kr. 250.000 -
    Kvennakórinn Héraðsdætur tónleikar; Kvennakórinn Héraðsdætur kr.100.000 -
    Tónleikar og tónleikaferðalag Kórs Egilsstaðakirkju; Kór Egilsstaðakirkju kr. 100.000 -
    Dansstúdíó Emelíu listdansnámskeið; Listdans á Austurlandi kr. 300.000 -
    Sóley Rós ræstitæknir leiksýning; Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs kr. 100.000 -
    kynSlóðir sumarsýning MMF; Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs kr. 300.000 -
    Myrkraverk sjónlistaverk; Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs kr. 100.000 -
    Dagur skapandi greina; Félagsmiðstöðin Nýung kr. 250.000 -
    List án landamæra á Austurlandi; Þroskahjálp Austurlandi kr. 100.000 -
    Nr. 2 Umhverfing myndlistarsýning; Minjasafn Austurlands kr. 200.000 - Skráning og varðveisla fornra minja við Jöklu; Söguslóðir Austurlands kr. 200.000 -
    Sinfóníuhljómsveit tónlistarskólanna þátttaka nemenda; Tónlistarskólinn á Egilsstöðum kr. 100.000 -
    Kjarval og Dyrfjöllin heimildamynd; Frjálst orð kr. 200.000 -
    Útilistaverk við Sleðbrjótskirkju; Félag um minningarreit við við Sleðbrjótskirkju, kr. 100.000 -
    Efling námskeiðahalds Myndlistarfélags Fljótsdalshéraðs; Myndlistarfélag Fljótsdalshéraðs kr. 100.000 -
    Stelpur skapa námskeiðsröð; Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs kr. 300.000 -
    Þá verði Ferðafélag Fljótsdalshéraðs styrkt um kr. 150.000, vegna verkefnisins Heiðarbýlin í göngufæri, sem tekið verði af lið 13.69.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • .4 201801073 Kynningarmál
    Bókun fundar Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar samþykkir bæjarstjórn að framlag Fljótsdalshéraðs til sameiginlegrar kynningar sveitarfélaga á Austurlandi og Austurbrúar verði kr. 693.750, samkvæmt fyrirliggjandi birtingaráætlun 2018, sem verði tekið af lið 1363.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.
  • Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Lagt fram til kynningar og umhugsunar.
  • .7 201801076 Ormsteiti 2018
    Bókun fundar Í vinnslu.
  • Bókun fundar Fyrir liggur tölvupóstur frá Brynju Þorsteinsdóttur fyrir hönd NME, dagsett 19. janúar 2018 þar sem óskaði er eftir styrk til að halda Barkann, árlega Söngkeppni framhaldsskólanna.

    Eftirfarandi tillaga lögð fram:
    Að tillögu atvinnu- og menningarnefndar samþykkir bæjarstjórn að NME verði styrkt um kr. 100.000 sem tekið verði af lið 0589.

    Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.