Valtýr á grænni treyju

Þegar Jón Arnórsson var sýslumaður í Múlasýslu og búandi á Egilsstöðum á Völlum varð sá atburður að vinnumaður Péturs sýslumanns Þorsteinssonar, er þá bjó á Ketilsstöðum á Völlum, var sendur með silfur til smíða suður í Reykjavík, bæði peninga og brotasilfur, því þá var ekki smíðað silfur í Múlasýslu.
En þegar maðurinn kom að sunnan aftur fannst hann næstum dauður milli Sauðhaga og Vallaness og er þó fjarska langt bæja í milli. Fundu hann tveir smalar og var hann þá stunginn átján sárum en þó lítið eitt viðmælandi. Þeir spurðu hver honum hefði veitt slíka áverka en hann sagði: "Valtýr á grænni treyju." Gat hann svo ekki meira sagt og hné dauður niður. Varð hann því ekki prófaður meira en búið var að ræna hann öllu silfri og skjölum. Hafði hann þó mikið meðferðis af hvoru tveggja því margir ríkir menn sendu með honum silfur til að smíða úr.
Nú vissu menn ekki af neinum sem Valtýs nafn bar nema bóndanum á Eyjólfsstöðum og var hann hinn mesti sómamaður, reyndur að dyggð og ráðvendni og af öllum virtur og elskaður. Bóndi þessi átti 40 hundruð í fasteign og að því skapi af lausafé. Hann gekk á grænni treyju og er í munnmælum að það hafi verið einkennisbúningur þeirra sem áttu 40 hundruð í jörðum og þar yfir. Var hann nú tekinn til rannsóknar af áðurgreindum Jóni sýslumanni á Egilsstöðum og harðlega ásakaður fyrir að hafa orðið manni þessum að bana en Valtýr forsvaraði sig með skynsamlegum orðum og skírskotaði til síns fyrra lífernis, sór sig og sárt við lagði að hann væri saklaus af mannsmorði þessu.
En sumir sem höfðu öfund á honum fyrir það hvað ríkur hann var og vinsæll báru sakir á hann og var hann því grimmilega og meðaumkunarlaust píndur til sagna. En hann vitnaði til guðs að hann væri saklaus. Var honum þá hótað dauða og kom það fyrir sama. Beið hann rólegur þess sem verða vildi og vonaði að sakleysi sitt mundi opinberast. Var hann svo dæmdur til dauða af Jóni sýslumanni Arnórssyni, og hljóðar dauðadómurinn þannig:

"Dæmdur í dag sjálfseignarbóndinn Valtýr á grænni treyju, búandi á Eyjólfsstöðum, fyrir hryllilegasta mannsmorð, samt stuld á skjölum og pappírum og peningum og silfri.
Voru það hins deyjandi síðustu orð, að vitni tveggja smalamanna sem fundu hann dauðvona, að Valtýr á grænni treyju hefði framið allt þetta.
Því dæmist sjálfseignarbóndinn, nefndur Valtýr á Eyjólfsstöðum á Völlum, til hengingar á gálgaás, sex álna löngu rauðvíðistré, grjót borið á annan enda þess, í þrjátíu manna viðurvist, -- fyrir sitt óguðlega mannsmorð og stórþjófnað sem hann þó aldrei meðgengið hefur en segir sig alltaf saklausan af.
Jón Arnórsson."

Eftir þetta var farið með Valtý upp yfir svonefnda Egilsstaðablá sem kölluð er. Var þá blíðuveður og sólskin og logn. En þegar komið var með Valtý að gálganum mælti hann:
"Það mega allir heyra er samþykkja mitt líflát að ég er saklaus maður, ranglega til dauða dæmdur af óréttvísum dómara er ekki getur forsvarað verk sitt fyrir guðs hátignarhásæti sem við munum báðir koma fram fyrir, annar fyrr en annar seinna, og mun okkar uppskera þá næsta mjög ólík verða. Nú sjáið þér skýflóka upp renna við hafsbrún. Hann mun geta sýnt ykkur og sannað sakleysi mitt og mín grimmilega hefna."
"Aktið ei orðaskvaldur þetta," sögðu böðlarnir, en sýslumaður skipaði þeim að framkvæma verk sitt.
"Guð geymi mig en fyrirgefi ykkur," mælti Valtýr.
Síðan var hann hengdur og að því búnu dysjaður hjá stórri klettahellu sem enn í dag sést. En það var eins og hrollur væri í öllum eftir að verk þetta var unnið.
Tók nú að gera mjalldrífu og hinn mesta snjómokstur sem hélt stöðugt áfram daga og nætur í níu vikur. Var þá mæld dýptin á snjónum á sléttlendi á Vallanesi og var hann níu álnir en fimmtán álnir þar sem barfenni var. Sagði svo Guttormur prófastur Pálsson er seinna bjó í Vallanesi, hinn fróðasti maður, að menn hefðu aldrei vitað jafnmikinn snjó í Múlasýslu allt frá landnámstíð. Þótti öllum sem spá Valtýs mundi fram komin og að hann mundi saklaus hafa verið deyddur.
Sagt er að fjárdauði hafi þá verið svo mikill á Fljótsdalshéraði að þar hafi ekki verið nema átta ær. Stórgripafellir varð þar og mjög mikill og því varð þar hið megnasta hallæri svo menn dóu af harðrétti. Hefur vetur þessi síðan verið kallaður Valtýsvetur.
Um vorið lét Jón sýslumaður Arnórsson grafa upp bein Valtýs og jarða í Vallaneskirkjugarði að kristnum sið, nema hönd hans hin hægri var tekin og hengd fyrir innan kirkjuþilið á Egilsstöðum og þar hékk hún í þrettán ár. Urðu menn einskis vísari á því tímabili hver valdur var að framanskráðu illvirki.
En um vorið þess fjórtánda árs eftir að það var unnið bar svo til að þá er sýslumaður var að þinga var honum sagt að maður ókunnur vildi finna hann og væri hann bæði stór og illilegur. Gekk sýslumaður þá út og heilsaði hinn ókunni maður honum þá kurteislega og fékk honum bréf þegjandi. Sýslumaður tók við því og spyr hinn ókunna mann að heiti en hann kvaðst Valtýr heita.
"Hvaðan ertu?" spurði sýslumaður.
"Langt vestan af landi," svaraði hinn.
"Ertu hér ókunnur?" sagði sýslumaður, en Valtýr kvaðst þar aldrei fyrr komið hafa.
Sýslumaður bað hann bíða þar til úti væri þingið og sagðist þá skyldi fylgja honum á leið. Svo gekk Valtýr inn á undan sýslumanni en um leið og hann gekk undir áðurnefnda hönd, sem var orðin hörð og uppvisin, þá duttu þrír blóðdropar úr henni ofan í höfuð Valtýs og dreifðust út um hár hans. Sýslumanni brá mjög við þetta og ætlaði að líða í ómegin en spurði síðan Valtý hvernig því hagaði að blóð saklauss manns hrópaði hefnd yfir honum og bað allan þingheim skoða jarteikn þetta en allir lofuðu guð fyrir það.
Síðan var Valtýr píndur til sagna en hann bölvaði og formælti, bað fjandann styrkja málefni sitt, heitaðist að ganga aftur og drepa Jón sýslumann. Um síðir meðgekk hann þó að hann hefði drepið mann en sér hefði gengið verst að ná af honum silfrinu. Því hefði hann haldið þangað til hann var búinn að stinga hann átján sárum. Bréfin sem hann hefði verið með væru fyrir sunnan.
Margar jarðir kvaðst hann hafa keypt fyrir silfrið, vera orðinn stórríkur, ganga hversdagslega á grænni treyju, aldrei gefið fátækum neitt en alls staðar stolið því er hann hafði til náð. Eftir að hann myrti mann þennan sagðist hann hafa lagst á fjallveg þann sem Hjálpleysa heitir, stolist þaðan á bæi að ná sér í mat þangað til hann hefði farið enga mannavegi heim til sín, vestur í Barðastrandarsýslu. En hann vildi ráðleggja hverjum einum sem lífi vildi halda að fara ekki Hjálpleysu.
Nú var Valtýr dæmdur þeim sama dómi og nafni hans áður, nefnilega að hengjast á sama gálgaás. Var nú farið með hann til aftökustaðarins og heitaðist hann þá við alla sem að drápi hans voru. Örðugt gekk að festa Valtý upp því varla gátu þeir borið svo grjót á annan enda gálgans að Valtýr vægi hann ekki upp. Ekki var hann tekinn úr snörunni fyrr en hann var orðinn stirðnaður. Var hann þá svo hræðilegur að fáir treystust til að urða hræ hans. Mjög þótti reimt á leiði hans nokkra hríð og þótti eldur loga þar um nætur.
Eitt sinn var það að maður frá Egilsstöðum ók heim gálgatré Valtýs og vildi brenna því og hjó nokkuð niður af því til eldkveikju. En um nóttina var grimmilega riðið húsum og barðar utan þekjur svo brakaði í hverju tré en maðurinn var snúinn úr liði á báðum höndum og fótum og varð svo aldrei með heilli sinnu upp frá því. Síðan var gálgatré þetta flutt aftur á sinn stað og þar er það enn í dag. Það er meira en þrjár álnir á lengd.
Hafi menn sofnað á leiði Valtýs hefur þá dreymt mjög ónotalega. Jafnan blása bein hans upp aftur hversu vel sem þau eru urðuð og má jafnvel sjá þau flestöll enn í dag. Sést á þeim að hann hefur verið mjög stórvaxinn. Tóku lærleggir hans manni 18 ára, sem var meðalmaður á vöxt, í mitt læri og er hann enn á lífi (1868).

(M.B. -- Þjóðsagnakver.)

Síðast uppfært 03. apríl 2009