Endurskoðun Aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027 til umsagnar

Málsnúmer 202003061

Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 129. fundur - 25.03.2020

Erindi frá Fjarðabyggð vegna endurskoðunar á aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007 - 2027. Skipulags- og matslýsing vegna endurskoðunar aðalskipulags Fjarðabyggðar 2007-2027 liggur nú frammi til kynningar.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd gerir ekki athugasemd við skipulags- og matslýsingu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.