Rekstrarframlag til Héraðsskjalasafns Austfirðinga 2020 og aðalfundur 29. nóvember 2019

Málsnúmer 201911048

Atvinnu- og menningarnefnd - 95. fundur - 14.11.2019

Fyrir liggur endurskoðuð fjárhagsáætlun Héraðsskjalasafns Austfirðinga, sem samþykkt var af stjórn safnsins 12. nóvember 2019. Áætlunin gerir ráð fyrir lægra framlagi sveitarfélagsins til safnsins en gert hefur verið ráð fyrir.

Atvinnu- og menningarnefnd samþykkir fyrir sitt leyti fyrirliggjandi fjárhagsáætlun safnsins fyrir árið 2020.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.