Fyrirspurn vegna atvinnumálaflulltrúa og vatnstanks á Þverklettum

Málsnúmer 201911045

Atvinnu- og menningarnefnd - 95. fundur - 14.11.2019

Fyrir liggur fyrirspurn frá Benedikt V. Warén um hugmyndir annars vegar um ráðningu atvinnumálafulltrúa og hins vegar hugmyndir um notkun á vatnstank á Þverklettum.

Atvinnu og menningarnefnd vísar til bókunar nefndarinnnar frá 11.2.2019 þar sem fram kemur að hugmyndir um ráðningu atvinnumálafulltrúa verði teknar til skoðunar við undirbúning stofnunar nýs sveitarfélags.

Nefndin felur starfsmanni að afla upplýsinga um vatnstankinn og svara fyrirspurn Benedikts.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.