Umsókn um framkvæmdaleyfi til skógræktar á Hrafnabjörgum 4

Málsnúmer 201911029

Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 123. fundur - 27.11.2019

Umsókn um framkvæmdaleyfi til skógræktar á Hrafnabjörgum 4.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd telur að framkvæmdin heyri undir C flokki í mati á umhverfisáhrifum. Nefndin telur ekki að þurfi að fara í umhverfismat vegna framkvæmdar.
Lagt er til við bæjarstjórn að hún fái málsmeðferð samkvæmt 4. mgr. 6. gr. laga nr. 106/2000.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.