Beiðni um styrk vegna gerðar kvikmyndar frá Jökuldal

Málsnúmer 201903010

Atvinnu- og menningarnefnd - 84. fundur - 11.03.2019

Fyrir liggur tölvupóstur, dagsettur 1. mars 2019, frá Gísla Sigurgeirssyni, þar sem óskað er eftir styrk til gerðar heimildamyndar um Jökuldal og Jökuldalsheiðina.

Atvinnu-og menningarnefnd telur sér ekki fært að verða við beiðninni að þessu sinni. Nefndin bendir á að næst verður auglýst eftir umsóknum um menningarstyrki í nóvember.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.