Leiðarljós fyrir þá gesti sem koma með skemmtiferðaskipum til Seyðisfjarðar

Málsnúmer 201806122

Atvinnu- og menningarnefnd - 71. fundur - 25.06.2018

Fyrir liggur frá Seyðisfjarðarkaupstað boð um að Fljótsdalshérað taki þátt í vinnufundi sem samtökin "AECO - Association of Arctic Expedition Cruise Operators" ætla að standa fyrir á Seyðisfirði 26. júní 2018, um gerð leiðarljóss (community guide lines) fyrir þá gesti sem koma með skemmtiferða-/ -leiðangursskipum til Seyðisfjarðarhafnar.

Atvinnu- og menningarnefnd leggur til að starfsmaður nefndarinnar sæki fundinn.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.