Umsókn um skráningu nýrra landeigna í fasteignaskrá úr landi Storms

Málsnúmer 201805192

Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 93. fundur - 27.06.2018

Fyrir Umhverfis- og framkvæmdanefnd liggur erindi frá Einari Ben Þorsteinssyni um stofnun lóðar úr landi Storms á Völlum

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir erindið og felur skipulags- og byggingarfulltrúa það til afgreiðslu.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.