Umsókn um byggingarleyfi fyrir skemmu að Útnyrðingsstöðum

Málsnúmer 201805159

Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 93. fundur - 27.06.2018

Fyrir liggur erindi frá Stefáni Sveinssyni þar sótt erum byggingarleyfi fyrir byggingu skemmu í landi Útnyrðingsstaða.

Umhverfis- og framkvæmdanefnd samþykkir erindið og felur byggingarfulltrúa það til afgreiðslu, lagt er til að erindi verði kynnt Minjastofnun.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.