Bæjarstjórnarbekkurinn - frítt í sund og samningur við fimleikadeild

Málsnúmer 201802086

Íþrótta- og tómstundanefnd - 39. fundur - 28.02.2018

Fyrir liggur erindi frá bæjarstjórnarbekknum í Barra 16. desember 2017 þar sem lýst er yfir ánægju með að frítt er í sund fyrir börn á leik- og grunnskólaaldri á Fljótsdalshéraði. Að auki vangaveltur um samning sveitarfélags við fimleikadeild Hattar varðandi þátttöku í kaupum á áhöldum.

Íþrótta- og tómstundanefnd leggur til að starfsmaður nefndarinnar myndi starfshóp sem í eru ásamt honum, forstöðumaður íþróttamiðstöðvarinnar, fulltrúi fimleikadeildar og yfirmaður Eignasjóðs. Starfshópurinn fari yfir búnað og áhöld til fimleikaiðkunar í væntanlegu fimleikahúsi og komi með tillögu að hvaða tæki og búnaður skuli vera til staðar og hvert eignarhaldið skuli vera. Tillögum starfshópsins verði skilað til nefndarinnar fyrir 15. apríl 2018.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.