Gjaldsksrá fyrir stuðningsfjölskyldur 2018

Málsnúmer 201802064

Félagsmálanefnd - 162. fundur - 20.02.2018

Lögð er fyrir nefndina breytingartillaga á gjaldskrá stuðningsforeldra þar sem lagt er til að jafna greiðslur til stuðningsforeldra fatlaðra barna við greiðslur til stuðningsforeldra barna á grundvelli barnaverndarlaga.

Félagsmálanefnd samþykkir framkomnar tillögur um samhæfða gjaldskrá með þeirri breytingu að gjald vegna vistunar barns í fyrsta flokki sé hærra, eða sem nemur 20.212,- kr./pr sólarhring.