Umsókn um skráningu nýrra landeigna í fasteignaskrá, Laufás Hjaltastaðaþinghá

Málsnúmer 201711106

Umhverfis- og framkvæmdanefnd - 85. fundur - 14.02.2018

Lögð er fram umsókn frá Guðmundi Karli Sigurðssyni þar sem óskað er eftir umsögn um landskipti jarðarinnar Laufás í Hjaltastaðaþinghá.

Umhverfis- og skipulagsnefnd leggur til að bæjarstjórn veiti jákvæða umsögn um landskiptin.

Samþykkt samhljóða með handauppréttingu.